Snorri Sturluson - PowerPoint PPT Presentation

1 / 31
About This Presentation
Title:

Snorri Sturluson

Description:

Snorri Sturluson Kirsten Lyb k Vangsgaard, 2002. Inngangur essu verkefni ver ur fjalla um vi Snorra Sturlusonar. Hann er ekktur v a heiminum fyrir ... – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:85
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 32
Provided by: Kirst49
Category:
Tags: snorri | sturluson

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Snorri Sturluson


1
Snorri Sturluson
  • Kirsten Lybæk Vangsgaard, 2002.

2
Inngangur
  • Í þessu verkefni verður fjallað um ævi Snorra
    Sturlusonar. Hann er þekktur víða í heiminum
    fyrir skáldskap sinn. En hann er einnig kunnugur
    fyrir að vera mikill höfðingi og auðugur maður.
    Talið er að hann sé einn af frægustu Íslendingum
    sem hafa verið uppi fyrir utan rithöfundinn
    Halldór Laxnes.

3
Ætt og uppruni
  • Snorri Sturluson fæddist 1178 eða 1179 að Hvammi
    í Dölum. Faðir hans hét Sturla Þórðarson og var
    kallaður Hvamms-Sturla. Móðir Snorra hét Guðný
    Böðvarsdóttir.

4
Snorri og systkin hans
  • Faðir Snorra var þrígiftur og átti samtals sjö
    börn, en alsystkin Snorra voru fjögur og hétu
  • Sighvatur
  • Helga
  • Vigdís
  • Þórður

5
Ættartré yfir foreldra og systkin Snorra Sturluson
6
Jón Loftson og Snorri
  • Þegar Snorri var þriggja ára var hann settur í
    fóstur til Jóns Loftssonar í Odda á Rangárvöllum.

7
Snorri í fóstri
  • Ástæðan fyrir að Snorri var settur í fóstur hjá
    Jóni var að Sturla - faðir Snorra lenti í
    erfðadeilu. Ágreiningurinn var mikill og Jón
    Loftsson var fenginn til að dæma í málinu.
    Dómurinn var ekki Sturlu í hag og sem bót bauðst
    Jón Loftsson til að taka Snorra í fóstur.

8
Snorri í fóstri, frh.
  • Sturla var sáttur við þetta fyrirkomulag vegna
    þess að á þeim tíma var talið að sá sem setti
    barn sitt í fóstur til annars mann væri meiri
    maður en hinn sem tók barnið í fóstur. Tilboð
    Jóns Loftssonar var þá mikið virðingar- og
    vináttumerki.
  • Einnig má búast við að Sturla vissi að Snorri
    mundi fá góða bóklega menntun vegna þess að Jón
    Loftsson var lærður og vitur maður. Snorri ólst
    upp í Odda til 19 ára aldurs.

9
Snorri kvænist
  • Árið 1202 giftist Snorri Herdísi Bersadóttur frá
    Borg á Mýrum. Herdís var rík kona og með henni
    fylgdi goðorð föður Herdísar. Á þeim tíma gátu
    konur ekki verið goðar og þess vegna kom goðorðið
    í hlut eiginmannsins hennar - Snorra.
  • Þannig varð Snorri ríkur og fékk goðorð sem hann
    hélt eftir að hann skildi við Herdísi.

10
Börn Snorra og Herdísar
11
Snorri kvænist aftur
  • Snorri kvæntist aftur og þá einni ríkustu konum
    Íslands Hallveigu Oddsdóttur í Rangárþingi.
  • Þau eignuðust engin börn saman.

12
Börn Snorra utan hjónaband
13
Veldi Snorra Sturlusonar
  • Ríki og völd Snorra óx með tímanum og hann jók
    vald sitt þegar hann árið 1206 tók við
    kirkjustaðnum í Reykholti. Einnig lét Þórður
    Böðvarsson (móðurbróðir Snorra) Snorra hafa hálft
    goðorð sitt í Borgarfirði. Síðar náði Snorri öllu
    goðorðinu og þannig náði hann völdum yfir
    Borgarfirði.

14
Veldi Snorra Sturlusonar vex
  • Snorri hélt áfram að bæta við veldið sitt. Hann
    gerði það meðal annars með því að gifta dætur
    sínar ríkum höfðingjum.
  • Dætur Snorra Hallberu, Þórdísi og Ingibjörgu.

15
Hjónabönd dætra Snorra
16
Skúli jarl og Snorri Sturluson
  • Þegar Snorri var orðinn mikill höfðingi fór hann
    til Noregs. Hann bjó hjá Skúla jarli og þeir urðu
    miklir vinir.
  • Skúli jarl var mikill og voldugur maður vegna
    þess að hann var settur til að stjórna Noregi.
    Þetta hlutverk hlaut hann vegna þess að
    konungurinn, Hákon Hákonarson var barn að aldri.

17
Snorri gerist hirðmaður Noregskonungsins
  • Hákon konungur vildi ná Íslandi undir Noreg og
    reyndi að fá Snorra til að vinna það verk. Hann
    gerði Snorra að hirðmanni sínum og við það jókst
    virðing Snorra Sturlusonar.

18
Deilur milli norskra kaupmanna og nokkurra
Íslendinga
  • Meðan Snorri var í Noregi urðu illdeilur milli
    norskra kaupmanna á Íslandi og nokkurra
    Íslendinga. Ófriðurinn endaði með að norsku
    kaupmennirnir voru drepnir. Skúli jarl ætlaði að
    með her á skipum til Íslands og þvinga Íslendinga
    til að láta kaupmenn í friði.
  • Snorra leist ekki á það og fór til Íslands með
    boð frá konungnum og Skúla jarli um að íslensku
    höfðingjarnir skyldu fara, einn og einn, til
    Noregs og gerast hirðmenn konungsins.

19
Sturla Sighvatsson
  • Snorri Sturluson reyndi ekki að fá Ísland undir
    Noreg. Það varð til þess að Hákon konungur og
    Skúli jarl gerðu Sturlu Sighvatsson að hirðmanni
    þegar hann eitt skipti var í Noregi. Sturla
    lofaði að koma Íslandi undir vald Hákonar.
  • Sturla var iðinn við að reka erindi konungsins og
    fékk aðstoð föður síns Sighvats.

20
Bardaginn á Örlygsstöðum
  • Snorri vildi ekki berjast við bróður sinn né
    bróðurson og flúði til Noregs.
  • Í Noregi frétti Snorri af falli Sturlu og
    Sighvats á Örlygsstöðum í Skagafirði.

21
Út vil ek
  • Hákon konungur bannaði öllum íslendingum að fara
    frá Noregi en Snorri óhlýðnaðist og sagði Út
    vil ek. Með hjálp Skúla jarls komst hann úr
    landi.

22
Skúli jarl vinur Snorra og óvinur Hákonar
konungs
  • Skúli jarl hjálpaði Snorra að komast til Íslands.
    Það var áætlun Skúla að gera Snorra að jarli yfir
    Íslandi og hans manni þar.
  • Skúli var að undirbúa uppreisn gegn Hákoni
    konungi en Hákon komst að því og lét drepa Skúla
    jarl.

23
Gissur Þorvaldsson bandamaður Hákons konungs
  • Hákon konungur sendi bréf til Gissurar
    Þorvaldssonar um að hann ætlaði að handtaka
    Snorra vegna þess að Snorri fór til Íslands án
    leyfis.

24
Fall Snorra Sturlusonar
  • Gissur hélt mjög á lofti þessu konungsbréfi og
    fór með fjölmennt lið til Reykholts nótt eina í
    september 1241. Ekki varð fólk vart við aðförina
    enda fólk sofandi.

25
Eigi skal höggva
  • Réðst þá Gissur inn í bæinn en Snorri gat falið
    sig. Þóttist þá Gissur ætla að sættast við Snorra
    ef honum væri vísað á hann. Prestur vísaði honum
    á Snorra. Maður var settur til að vega að Snorra
    en Snorri sagði Eigi skal höggva. Eftir það var
    honum veitt banasár.

26
Endalok þjóðveldisins
  • Tuttugu árum eftir fall Snorra Sturlusonar lauk
    þjóðveldinu og Íslendingar gengu undir
    Noregskonunga.

27
Skáldskapur Snorra Sturlusonar
  • Eins og nefnt í upphafi var Snorri einn þekktasti
    rithöfundur Íslendinga. Auk Íslendingasagna eru
    ritverk hans Edda, Heimskringla og Egils saga.

28
Skáldskapur Snorra Sturlusonar
  • Heimskringla segir sögu Noregskonunga frá
    öndverðu til 1100.
  • Edda er kennslubók í skáldskap og skiptist í
    Skáldskaparmál, Háttatal og Gylfaginningu.
  • Egils saga Skallagrímssonar, Egla er saga Egils
    og þar er varðveittur skáldskapur hans. En hann
    var líka eitt mesta skáldið sem ort hefur á
    norrænni tungu.

29
Niðurlag/samantekt
  • Hér eigið þið svo að koma með eigin skoðanir og
    athugasemdir um verkefnið.

30
Heimildir
  • Alfræði unga fólksins fróðleiksnám (1994) (bls.
    478) Reykjavík. Örn og Örlygur.
  • Gunnar Karlsson. (1993) Sjálfstæði Íslendinga.
    (bls. 57-79). Reykjavík. Námsgagnastofnun.
  • Ingólf Björgvin Kristjánsson. (án árs). Snorri
    Sturluson og sturlungaöldin. http//www.skolavefur
    inn.is (4.9.2002)

31
Heimildir, frh.
  • Jónas Jónsson. (án árs). Íslands Saga. (bls.
    137-139 og 151-152). Reykjavík. Ríkisútgáfa.
  • Söguatlas. Frá öndverðu til 18. aldar. (bls.
    96-97). (1991). Reykjavík. Iðunn.
  • Vefur um Snorra Sturluson http//www.fva.is/harpa
    /forn/snorri/snorris.html
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com