Hven - PowerPoint PPT Presentation

1 / 28
About This Presentation
Title:

Hven

Description:

Hven r ver ur kynfer isleg heg un barna hyggjuefni orbj rg Sveinsd ttir BA-s lfr i Ge svi LSH Vi br g vi fr s gnum barna um kynfer islegt ... – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:47
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 29
Provided by: AsgeirH
Category:
Tags: hven

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Hven


1
Hvenær verður kynferðisleg hegðun barna
áhyggjuefni
  • Þorbjörg Sveinsdóttir
  • BA-sálfræði
  • Geðsvið LSH

2
Viðbrögð við frásögnum barna um kynferðislegt
ofbeldi
  • Þorbjörg Sveinsdóttir
  • BA-sálfræði
  • Geðsvið LSH

3
Kynferðisleg hegðun barna
  • Börn þroskast kynferðislega, eins og þau þroskast
    líkamlega, tilfinningalega og félagslega
  • Þetta ferli er í stöðugri þróun og getur breyst
    frá tíma til tíma
  • Þetta ferli er undir áhrifum kynslóða, menningar,
    tíma og staðar auk áhrifa frá samfélaginu
  • Viðhorf um hvað telst eðlilegt og hvað telst ekki
    eðlilegt geta breyst á skömmum tíma

4
Kynferðisleg hegðun
  • Börn eru forvtin um eigin líkama og líkama
    annarra og geta tekið þátt í að skoða líkama sinn
    og líkama annarra í gegnum kynferðislega leiki
  • Þessi áhugi er mismikill hjá börnum og er mjög
    persónubundinn

5
Eðlileg kynferðisleg hegðun
  • Mikilvægt er að rannsaka eðlilega kynferðislega
    hegðun á ýmsum þroskaskeiðum svo mögulegt sé að
    aðgreina slíka hegðun frá þeirri sem er óalgeng
    og álitin vandamál í því samfélagi sem barnið
    býr í

6
Þróun eðlilegrar kynferðislegrar hegðunar hjá
börnum
  • 0-5 ára börn
  • Forvitni um eigin líkama
  • Kanna líkama sinn (snerting kynfæra)
  • Forvitni um kynfæri jafnaldra og jafnvel foreldra
  • Áhugi á klósettferðum í leikskólanum
  • Um fimm ára
  • Hegðunin verður félagslegri
  • Fara að sýna hvort öðru kynfæri sín
  • Læknisleikir og mömmuleikir vinsælir

7
Eðlileg kynferðisleg hegðun, frh...
  • 6-10 ára börn
  • Áhugi á breytingum sem eiga sér stað á líkamanum
  • Læra félagslegar reglur um kynferðislegt tal og
    hegðun
  • Stundum kemur fram feimni um líkamann og
    kynferðisleg hegðun því falin fyrir foreldrum
  • Forvitni um kynferðislega hegðun fullorðinna
  • Dónabrandarar vinsælir
  • Spurningar um hvernig börn verða til

8
Eðlileg kynferðisleg hegðun, frh...
  • 11-12 ára börn
  • Flest komin nokkuð áleiðis í kynþroska
  • Kynferðisleg hegðun og snerting kynfæra þróast út
    í sjálfsfróun
  • Kynferðisleg hegðun verður meira einkamál
  • Hugsanlegur áhugi á kynferðislegu efni (s.s. Í
    blöðum, tölvum og þ.h.)
  • Kynferðislegt tal

9
Sænsk rannsókn
  • Larson og Svedin á 231 barni, helmingur kvk og
    helmingur kk á aldrinum 3-6 ára
  • Algeng kynferðisleg hegðun (yfir 40)l
  • Snerta brjóst móður
  • Ganga nakinn um heima
  • Skoða kynfæri annarra
  • Snerting á eigin kynfærum (oftar kk)
  • Læknisleikir (ekki af kynferðislegum toga)

10
Sænsk rannsókn frh....
  • Óalgeng kynferðisleg hegðun (5)
  • Snerting á kynfærum fullorðinnar konu
  • Tilraunir til að fá fullorðna til að snerta
    kynfæri sín
  • Tilraunir til að afklæða annað barn
  • Herma eftir kynlífi fullorðinna með dúkkum
  • Kynferðislegir leikir með jafnaldra
  • Forvitni um kynfæri foreldra

11
Aðrar rannsóknir sýna að ...
  • Eftirfarandi hegðun vekur áhyggjur en er
    tiltölulega óalgeng hjá börnum
  • Herma eftir kynlífi fullorðinna
  • Tilraunir til að setja hluti inn í
    kynfæri/endaþarm hjá sjálfum sér eða öðrum börnum
  • Að sleikja kynfæri annarra eða fá aðra til að
    sleikja kynfæri sín
  • Neyða annað barn til kynferðislegra athafna
  • Sjálfsfróun á almannafæri
  • Sýna eigin kynfæri á almannafæri

12
Vandamál tengd kynferðislegum leikjum barna
  • Þegar samskipti barna einkennast af því að neyða,
    hóta, sýna vald, árásargirni, ofbeldi og getur
    oft verið áráttukennd og síendurtekin.
  • Ólíkt eðlilegum kynferðislegum leikjum sem eru
    fyrirvaralausir, innihalda gleði og hlátur,
    feimni og eru án þvingana.
  • Ég skal sýna þér mitt ef þú sýnir mér þitt

13
Vandamál frh...
  • Aldursmunur
  • Ef hann er meiri en 3 ár er tilefni til að hafa
    áhyggjur
  • Stærðar og styrkleikamunur
  • Hegðunin eða leikirnir vekja upp tilfinningar
    eins og hræðslu, kvíða, skömm og óþægindi
  • Meiri leynd en talist getur eðlileg
  • Hegðunin verður áráttu-þráhyggjukennd og truflar
    daglegt líf viðkomandi
  • Ekki kynferðislegur leikur þegar barn er eldra en
    12 ára, þá er talað um ungmenni sem beita aðra
    kynferðislegu ofbeldi.
  • Mikilvægt að fylgjast vel með ef miklar
    hegðunarbreytingar verða hjá barni og það sýnir
    vanlíðunareinkenni sem ekki eiga sér eðlilegar
    skýringar

14
Hafa ber í huga
  • Rannsóknir sýna að börn sem hafa verið beitt
    kynferðisofbeldi sýna oftar kynferðislega hegðun
    og leiki
  • Þýðir ekki að slík hegðun feli í sér að barn hafi
    verið beitt kynferðisofbeldi
  • Mikil tengsl milli kynferðislegrar hegðunar hjá
    börnum og annarra hegðunarerfiðleika s.s.
    Ofvirkni, athyglisbrests, áráttu/þráhyggju og
    þ.h.
  • Oft hafa börn sem sýna kynferðislega hegðun séð
    óviðeigandi efni af kynferðislegum toga

15
Tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi
  • Í 15 allra mála sem komu í Barnahús frá 1998
    (nóv) til loka árs 2005 greindu börn frá
    kynferðislegum leik eða 160 börn
  • Alvarleikastig (ekki þekkt í 26 tilvikum)
  • Minnst alvarleg 31 talsins
  • Alvarleg 26 talsins
  • Mest alvarleg 80 talsins
  • Í 77 tilvikum greindu börn sjálf frá leiknum
  • Í 77 tilvikum vöknuðu grunsemdir á annan hátt
  • Ekki þekkt í 6 tilvikum

16
Hvað er til ráða??
  • Mikilvægt að nefna kynfæri barna réttum nöfnum og
    ræða við börn ef þau eru uppvís af hegðun sem
    vekur áhyggjur
  • Börn ætlast til þess að fullorðnir ræði við þau
    um hvers kyns vandamál ... Líka af þessum toga!!!
  • Ég heyrði að þú hafir snert tippið á Nonna,
    segðu mér frá því
  • Fræðsla um áhrif hegðunarinnar á aðra
  • Fræðsla um að hegðun af þessu tagi er óæskileg
  • Ekki bregðast harkalega við eða hneykslast
  • Alls ekki skamma barnið!!

17
Hvað er til ráða frh...
  • Ef barn verður uppvíst af atferlinu aftur
  • Segja barninu að þú hafir heyrt af endurtekinni
    hegðun
  • Minna barnið á fyrra samtal og áhrif hegðunar á
    aðra og láta barnið vita að þú hafir áhyggjur af
    hegðuninni. Segja barninu að það þurfi að láta af
    hegðuninni
  • Ef hegðunin heldur enn áfram er mikilvægt að
    leyta til sérfræðings
  • Ef hegðunin er alvarleg skal leyta strax til
    sérfræðinga
  • Mikilvægt að bregðast við en gæta þess um leið að
    fara ekki offari

18
(No Transcript)
19
Einkenni kynferðisofbeldisÞví miður er mjög
erfitt að fullyrða um hvað einkennir börn sem
hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Viðbrögð barna
eru mismunandi og mörg einkenni sem oft er talað
um geta komið fram hjá börnum sem hafa verið
beitt öðru ofbeldi, einelti, hafa orðið fyrir
annars konar áfalli eða eru vanrækt
20
Viðbrögð við ofbeldisfrásögn
  • Helstu vísbendingar um kynferðislegt ofbeldi
  • Barn segir frá
  • Mikil kynferðisleg hegðun eða þátttaka í
    kynferðislegum leikjum sem vekja áhyggjur
  • Vitneskja um kynferðismál sem er ekki í samræmi
    við aldur og þroska
  • Áverkar/sýkingar á kynfærum eða jafnvel
    kynsjúkdómar
  • Líkamleg einkenni, s.s. Höfuðuverkur, magaverkur
    og þ.h. Sem ekki finnast læknisfræðilegar
    skýringar á
  • Sænsk rannsókn sýnir að eitt af hverjum þremur
    misnotuðum börnum sýnir engin einkenni
    kynferðisofbeldis

21
Barn segir frá kynferðismisnotkun
  • Barnið
  • Hefur lengi langað að segja frá
  • Leitar af einhverjum sem það treystir í umhverfi
    sínu
  • Segir óvart frá
  • Óskar eftir trúnaði
  • Líður illa
  • Móttakandi
  • Hlusta
  • Leiðbeina um leiðir
  • Láta vita um tilkynningarskylduna
  • Veita stuðning
  • Ekki spyrja leiðandi spurninga
  • Rétt að segja frá
  • Viðbrögðin skipta máli

22
Viðbrögð .... Hvað má ekki!
  • Ekki vorkenna barninu
  • Ekki hneykslast
  • Ekki fara á taugum
  • Ekki sýna of sterk viðbrögð s.s. Fara að hágráta
  • Ekki sýna barninu að þú trúir því ekki
  • Það er í höndum fagaðila að komast að hinu sanna
  • Ekki hika við að tilkynna málið til
    barnaverndarnefndar
  • Þú þarft ekki að vera viss og vita allar
    staðreyndir
  • Láttu barnið ávallt njóta vafans
  • Tilkynningarskyldan er ekki val heldur skylda

23
Hverjum segja börn frá
  • Niðurstöður úr nýrri íslenskri rannsókn sem gerð
    var fyrir Barnaverndarstofu
  • Rannsókn meðal framhaldsskólanema á Íslandi
  • Niðurstöður byggja á svörum 15-24 ára
    framhaldsskólanema (tæplega 11.000 manns)
  • Rannsókn og greining

24

25
Hvers vegna segja börn frá
  • Niðurstöður rannsóknar Gísla Guðjónssonar, Jóns
    Friðriks Sigurðssonar, Jóhönnu K. Jónsdóttur og
    Þorbjargar Sveinsdóttur á framburði barna í
    Barnahúsi

26
  • Vanlíðan sem tengdist því að komast á
    kynþroskaaldur
  • Aðrir þolendur sama geranda sögðu frá
  • Eftir samtal við fagaðila
  • Fjölmiðlaumfjöllun
  • Áhyggjur af yngra systkini
  • Brottflutningur meints geranda af heimili

27
Hvers vegna segja börn frá
  • Rannsókn og greining
  • Vanlíðan
  • Vissi að þetta var rangt
  • Vildi ekki að þetta kæmi fyrir mig aftur
  • Vildi ekki að þetta kæmi fyrir aðra
  • Annar aðili komst að því
  • Umfjöllun í fjölmiðlum
  • Fræðsla í skóla
  • Vinur/kunningi sagði frá eigin reynslu
  • Byrjaði í sambandi

28
Mikilvægt að hafa í huga
  • Fræðsla til barna og unglinga um hvernig þau eigi
    að bregðast við frásögnum vina af kynferðislegu
    ofbeldi
  • Kenna börnum og unglingum að segja alltaf
    fullorðnum frá eða hafa samband við 112 þar sem
    nú er hægt að tilkynna til barnaverndarnefndar
  • Þung byrði fyrir ungar sálir að geyma slík
    leyndarmál vina sinna
  • Þolendur greina stundum vinum frá í von um að
    vinirnir leyti til fullorðinna, skortir sjálf
    kjarkinn
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com