13. Kafli: Innkirtlakerfi - PowerPoint PPT Presentation

1 / 25
About This Presentation
Title:

13. Kafli: Innkirtlakerfi

Description:

Title: Stj rnkerfi l kamans: taugakerfi og innkirtlakerfi Author: kennari Last modified by: F Created Date: 11/19/2001 6:24:57 PM Document presentation format – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:67
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 26
Provided by: kennari
Category:

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: 13. Kafli: Innkirtlakerfi


1
13. Kafli Innkirtlakerfið
  • Líffæra- og lífeðlisfræði 103
  • Guðrún Narfadóttir

2
Samanburður á stjórnkerfum líkamans
  • Taugakerfi
  • Miðlar áhrifum með taugaboðum
  • Hefur áhrif á vöðvasamdrátt eða kirtilseyti
  • Hraðvirkt kerfi, en áhrifin vara stutt
  • Innkirtlakerfi
  • Miðlar áhrifum með hormónum
  • Hefur margþætt áhrif á alla vefi líkamans
  • Hægvirkara en taugakerfi, en áhrifa getur gætt
    lengi

3
Skilgreining á hormónum
  • Hormón eru mynduð af innkirtilfrumum og losuð út
    í millifrumuvökvann
  • Blóðborin hormón fara út blóðrásina
  • Staðbundin hormón (prostaglandín) fara ekki út
    í blóðrás, en hafa áhrif á nærliggjandi vefi
  • Hafa áhrif á starfsemi markfrumna (target cells)
    sem hafa sérhæfða viðtaka (receptors) fyrir
    hormónið

4
Hverju stjórna hormón?
  • Efnasamsetningu blóðs
  • Efnaskiptahraða
  • Samdrætti sléttra vöðva og hjartavöðva
  • Seyti kirtla
  • Ákveðnum þáttum ónæmiskerfisins
  • Vexti
  • Kynþroska, frjósemi, meðgöngu, fæðingu, næringu
    fósturs og afkvæmis
  • Viðhalda samvægi á álagstímum (streituhormón)

5
Hvernig efni eru hormón?
  • Fituleysanleg
  • Sterahormón (mynduð úr kólesteróli)
  • Öll hormón nýrnahettubarkar og kynhormónin
  • Thyroid hormón (T3 og T4) frá skjaldkirtli
  • Vatnsleysanleg
  • Amín
  • Adrenalín og noradrenalín frá nýrnahettumerg
  • Prótein og peptíð
  • T.d.insúlín

6
Virkni fituleysanlegra hormóna
  • Í blóðrásinni bindast þessi hormón
    flutnings-próteinum
  • 1. Hormónið losnar frá próteini, smýgur í gegnum
    frumuhimnu markfrumu og inn í kjarnann þar sem
    það binst viðtaka
  • 2. Hormón bundið viðtaka hefur áhrif á tjáningu
    gena
  • 3. Nýtt prótein er myndað í umfrymi (oftast er
    það eitthvert ensím)
  • 4. Nýja próteinið breytir starfsemi frumunnar

7
Virkni vatnsleysanlegra hormóna
  • Eðli síns vegna komast þessi hormón ekki í gegnum
    frumuhimnur
  • 1. Hormónið berst með blóði og tengist viðtaka
    (first messenger) utan á frumuhimnu
  • 2. Tenging milli hormóns og viðtaka örvar aðra
    sameind (second messenger) sem miðlar áhrifum
    hormónsins
  • cAMP er algengur second messenger
  • 3. cAMP virkjar nokkur ensím
  • 4. Virkjuð ensím valda breytingum á starfsemi
    frumunnar
  • 5. Eftir stutta stund er cAMP gert óvirkt og
    áhrifin hætta
    - nema meira hormón sé
    losað

8
Stjórnun á hormónalosun
  • Með taugaboðum
  • Dæmi sympatískar taugar örva nýrnahettumerg sem
    losar þá adrenalín
  • Með breyting á efnasamsetningu í utanfrumuvökva
    viðkomandi innkirtils
  • Dæmi insúlín losnar þegar styrkur glúkósa hækkar
  • Með öðrum hormónum
  • Dæmi ýmsir innkirtlar lúta stjórn hormóna frá
    framhluta heiladinguls

9
Heiladingull (hypophysis cerebri)
  • Tengist undirstúku með stilk
  • Skiptist í
  • Framhluta (kirtildingull, adenohypohysis)
  • er úr eiginlegum kirtilvef
  • myndar 7 mismunandi hormón
  • Afturhluta (taugadingull, neurohypophysis)
  • er framlenging á undirstúku úr taugavef
  • myndar ekki homón, en losar tvö hormón sem
    undirstúka myndar

10
Framhluti heiladinguls
  • Myndar 7 mismunandi hormón
  • Losun hormónanna er undir stjórn undirstúku
  • Frá undirstúku berast losunarhormón (RH) eða
    hömluhormón (IH) eftir sérstöku portæðakerfi til
    framhluta heiladinguls

11
Hormón úr framhluta heiladinguls
  • Vaxtarhormón (hGH)
  • Eykur myndun á IGFs (insulinlike growth factors)
    sem örvar vöxt flestra líkamsvefja
  • Er undir stjórn GHRH og GHIH frá undirstúku
  • Skjaldkirtilsstýrihormón (TSH)
  • Örvar skjaldkirtil til að losa T3 og T4
  • T3 og T4 hamla losun á TSH (neikvæð afturvirkni),
    en TRH frá undirstúku örvar losun á TSH
  • Sortufrumustýrihormón (MSH)
  • Örvar sortufrumur til að mynda melanín

12
Framhl. heiladinguls frh.
  • FSH (eggbússtýrihormón) og
  • LH (gulbússtýrih.)
  • Yfirkynhormón sem stjórna þroskun eggs og
    sáðfrumna og myndun kynhormóna í kynkirtlum
  • GnRH frá undirstúku örvar losun hormónanna en
    kynhormón (estrógen, prógesteron og testósterón)
    hamla (neikvæð afturvirkni)
  • Prólaktín
  • Örvar mjólkurmyndun í mjólkurkirtlum
  • PRH örvar losun prólaktíns, en PIH hamlar losun
  • ACTH (barkarstýrihormón)
  • Örvar losun á kortisóli frá nýrnahettum
  • CRH örvar losun á ACTH, en kortisól hamlar
    (neikvæð afturvirkni)

13
Afturhluti heiladinguls
  • Tekur við hormónum sem eru mynduð í undirstúku,
    geymir þau og losar þegar taugaboð koma frá
    undirstúku
  • Oxytocin
  • Dregur saman leg við fæðingu og mjólkurrásir við
    brjóstagjöf
  • ADH (þvagtemprandi hormón)
  • Eykur endurupptöku á vatni í nýrum og minnkar
    þannig þvagmagn

14
Skjaldkirtill (glandula thyroidea)
  • Staðsettur neðan við barkakýli
  • Myndar 3 hormón
  • Thyroxín (T4) og triiodothyronine (T3)
  • Stjórna efnaskiptahraða, vexti og þroska
  • Stjórnast af TRH frá undirstúku og TSH frá
    framhluta heiladinguls
  • Calcitonin
  • Lækkar styrk kalsíum í blóði
  • Losnar þegar styrkur kalsíum í blóði er hár

15
Kalkkirtlar (glandula parathyroidea)
  • Staðsettir aftan á skjaldkirtli
  • Mynda parathyroid hormón (PTH)
  • Eykur styrk kalsíum og magnesíum í blóði, en
    lækkar styrk fosfats
  • Losun eykst ef kalsíum styrkur í blóði lækkar

16
Nýrnahettur (glandula adrenalis)
  • Staðsettar ofan við nýru
  • Nýrnahettubörkur (cortex) myndar ytra lag Þar
    myndast þrenns konar hormón sem kallast
    barkarhormón
  • Saltsterar
  • Sykursterar
  • Kynhormón
  • Nýrnahettumergur myndar innra lagið. Þar myndast
    adrenalín og noradrenalín sem
  • losna vegna boða frá sympatískum taugum
  • hafa svipuð áhrif og sympatíska taugakerfið

17
Barkarhormónin
  • Saltsterar
  • Mikilvægast er aldosterón
  • Það eykur endurupptöku á natríum og vatni í
    nýrum, en eykur útskilnað á kalíum
  • Stjórnast af renín-angiotensín kerfinu
  • Sykursterar
  • Mikilvægastur þeirra er kortisól
  • Sykursterar auka próteinniðurbrot, nýmynda
    glúkósa úr amínósýrum og mjólkursýru, auka
    fituniðurbrot, eru bólgueyðandi og bæla
    ónæmiskerfið
  • Kynhormón
  • Hér myndast öll kynhormónin hjá báðum kynjum

18
Briskirtill (pancreas)
  • Blandaður kirtill sem liggur aftan við maga upp
    við skeifugörn
  • Í Langerhanseyjum briskirtils eru frumur sem
    mynda hormón
  • Alfa frumur mynda glúkagon
  • Beta frumur mynda insúlín
  • Delta frumur mynda sómatóstatín
  • F-frumur mynda pancreatic polypeptide

19
Hormón briskirtils Insúlín
  • Veldur lækkun á blóðsykri
  • Losnar þegar blóðsykur hækkar
  • Helstu áhrif insúlíns
  • Örvar flutning á glúkósa inn í frumur
  • Örvar sykurbruna
  • Breytir umframsykri í forðanæringu (glycogen og
    fitu)
  • Örvar flutning amínósýra inn í frumur og myndun
    nýrra próteina

20
Hormón briskirtils Glúkagon
  • Veldur hækkun á blóðsykri
  • Losnar þegar blóðsykur er lágur
  • Helstu áhrif glúkagons
  • Hvetur niðurbrot á glycogeni í glúkósa
  • Hvetur nýmyndun á glúkósa úr amínósýrum og
    mjólkursýru
  • Örvar lifur til að veita glúkósa út í blóðið
  • Örvar fitubruna

21
Eggjastokkar (ovariae)
  • Paraðir kynkirtlar í grindarholi kvenna
  • Mynda kvenkynhormónin estrógen og prógesterón sem
    ásamt FSH og LH frá heiladingli stjórna
  • kynþroska og viðhaldi annars stigs kyneinkenna,
    tíðahring, þroskun eggs, viðhaldi meðgöngu og
    undirbúningi fyrir brjóstagjöf
  • Eggjastokkar mynda líka hormónin inhibin og
    relaxin

22
Eistu (testes)
  • Paraðir kynkirtlar í pungholi karla
  • Mynda testósterón sem flokkast til andrógena og
    er aðal kynhormón karla
  • Helstu áhrif testósteróns
  • Kynþroski og viðhald annars stigs kyneinkenna
  • Myndun sáðfrumna
  • Eistun mynda líka hormónið inhibin sem hemur
    myndun FSH

23
Heilaköngull (corpus pineale)
  • Staðsettur við þak 3. heilahols
  • Myndar hormónið melatónín sem
  • stjórnar dægursveiflum (meira myndast í myrkri)
  • veldur mögulega skammdegisþunglyndi
  • er í háum styrk í börnum en fellur rétt fyrir
    kynþroska (fallið hrindir líklega kynþroskanum af
    stað)

24
Hóstarkirtill (thymus)
  • Staðsettur aftan við bringubein
  • Er stór í börnum en rýrnar með aldri
  • Myndar nokkur hormón (þar á meðal thymosin) sem
  • stuðla að þroskun T-eitilfrumna
  • seinka mögulega öldrun

25
Streita og hormón
  • Streituvaldar geta verið andlegir eða líkamlegir
  • 1.streitustigið er Fight or flight response
  • Örvun á sympatíska taugakerfinu og losun á
    adrenalíni
  • Tímabundin streita sem líkaminn ræður auðveldlega
    við
  • 2. streitustigið er viðnámsstig
  • Losun á kortisóli, vaxtarhormóni og thyroxíni
  • Varir í lengri tíma en 1. stigið
  • Próteinniðurbrot fylgir oft þessu stigi
  • 3. Streitustigið er örmögnunarstig
  • Líkaminn getur ekki lengur staðist álagið og
    homeostasis fer úr skorðum
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com